swimslow
GUSA
Vertu með í Sækoti sunnudaginn 1. nóvember kl. 14.00 í draumkenndum hægum sunnudegi þar sem við vinnum með hita, kulda og djúpa nærveru.
"Þegar ég leiði Gusu hugsa ég um hana sem ferðalag - skynræna upplifun sem færir þig úr huganum og aftur heim í líkamann.
Ég byggi upplifunina hægt og rólega upp.
Hiti, ilmkjarnaolíur, tónlist, öndun, te, nudd, þögn og hugleiðsla.
Við byrjum mjúklega og gefum okkur tíma til að lenda - í rýminu, hitanum og líkamanum. Síðan hækkar hitinn smám saman, ilmurinn fyllir rýmið og tónlistin stigmagnast.
Að lokum kemur augnablik þar sem það verður erfitt að hugsa.
Þú þarft einfaldlega að finna.
Ég elska þetta augnablik.
Hitinn krefst nærveru þinnar. Þú finnur fyrir andardrættinum og hjartslættinum. Jafnvel húðinni.
Svo stígur þú út í kuldann eða ofan í sjóinn. Andstæðurnar skapa ótrúlega sterka breytingu á skynjun. Fyrir mér gerast töfrarnir einmitt þar.
Allt í einu ertu komin aftur heim í líkamann."
Þrjár umferðir af djúpum hita. Á milli umferða kælum við okkur í hafinu og leyfum öldunum að hreinsa og bera burt það sem er tilbúið að fara.
- Gusumeistari: Erna Bergmann
- Hvenær: 1. nóvember kl. 14.00
- Hvar: Sækot - Ægissíða
- Lengd: 90 mínútur
- Öll hjartanlega velkomin ♡
- Regular price
- €0.00
- Sale price
- €0.00
- Regular price
-
Couldn't load pickup availability

